Ferrari Girl bloggar :)
24.12.2008 13:56:16 / loasae

Gleðileg Jól


Elsku ættingjar og vinir - Mig langar að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári :haha: 

Vona að þið eigið notaleg og ljúf jól :)

Jólakveðja
Lóa :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 20:10:12 / loasae

Frænka :)


Ég var að kíkja á bókina " Þú ert yndisleg frænka " sem ég fékk frá Thelmu minni í afmælisgjöf og langar mig að deila með ykkur smá viskubroti úr bókinni -

  • Frænkur eru einu manneskjurnar sem geta snúið sér að mömmu eða pabba og sagt:  Bull og vitleysa ! Þetta gerðir þú á þessum aldri - og það gerði þér ekkert til.  

Bara frábært :lol:  Hlakka til að fá að spilla Thelmu Lind - er náttlega þegar byrjuð á því hún hefur bara ekki vit á því ennþá hehehe

Ferrari Girl í Frænkufíling :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 21:06:06 / loasae

Hugleiðing dagsins


Eitthvað sem virtist óheppilegt um tíma reynist gæfuspor þegar upp er staðið.  Þú átt loksins eftir að þakka hjartasár fortíðarinnar.  Þau gerðu þig vitra(n).

Þetta var stjörnuspáin mín í mogganum í gær - og það er svo rosalega margt til í henni.  Og á svo vel við mig núna þetta árið - Árið 2008 hefur verið ár margra uppgötvana - uppskeru þess sem til var sáð og þessháttar :haha:  Ég hef oft velt fyrir mér í gegnum árin þegar ýmsir erfiðleikar hafa steðjað að, hver tilgangurinn væri eiginlega með þeim.  Hvers vegna í ósköpunum ég þyrfti að ganga í gegnum hitt og þetta :$.  En ég sá það eftir á - erfiðleikar eru til þess að sigrast á þeim og þeir gera mann sterkari.   Án þess að ég sé neitt að vorkenna sjálfri mér þá veit ég að ég hef gengið í gegnum ýmsa erfiðleika í gegnum árin - miserfiða og alvarlega - og þó ég segi sjálf frá þá held ég að ég standi uppi sem sterkari andlega :p  Ef væri ekki fyrir erfiðleikana þá kynni maður ekki að njóta þess góða og gleðilega í lífinu, og svo ekki sé nú talað um að halda geðheilsu 8)  Og á tímum erfiðleika hef ég haft þétt net vina og fjölskyldumeðlima - fyrir það er ég óendanlega þakklát, það er því miður ekki öllum gefið að eiga góða að :s 

Hugleiðing dagsins í boði
Ferrari Girl :haha:



» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 08:39:47 / loasae

16. október 2008


Loksins komst ég á netið hehe - er alveg að flippa út á tölvunni minni heima, hún er með einhverja stæla með að henda mér alltaf út af netinu og bara út úr tölvunni yfirleitt - svo að ég gat ekki sett inn afmæliskveðju í gær en hún Raggý mín átti afmæli í gær :lol:  Innilega til hamingju með daginn skvísa :haha:  Finnst eins og við höfum alltaf þekkst :haha:   Ég vissi alltaf hver Raggý var - höfum fylgst að í gegnum tíðina, sömu skólarnir - sami fermingardagur - svo báðar í Verzló - lærðum hjá sama ökukennara (og aðeins vika á milli okkar hehe) - pabbar okkar kunningjar 8)  og svo síðustu tvö árin í Verzló vorum við saman í bekk og svo var það í Útskriftarferðinni góðu til Cancun 1993 sem við urðum "vinkonur"  :haha: :haha:    Takk fyrir alla vináttuna - hjálpina og spjöllin í gegnum árin elsku Raggý mín, alveg sama hversu langt er á milli hittinga/spjalla þá er alltaf eins og við höfum spjallað í gær - vona að þú hafir átt yndislegan dag með stelpunum þínum :haha:

Afmæliskveðja
Ferrari Girl


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 23:26:37 / loasae

15. október 2008


Mig langar að setja hér inn afmæliskveðju :p  Hún Inga  Hrönn mín á afmæli í dag, 35 ára stelpan - Innilega til hamingju með daginn Inga mín :haha:  Þó það séu nú ekki nema um 3 ár síðan Raggý kynnti mig fyrir Ingu sinni, þá finnst mér eins og þær hafi alla tíð verið saman og ég hafi þekkt Ingu í miklu lengri tíma.  Þakka þér Inga mín fyrir alla vináttuna og hlýjuna og virðinguna :d   Vona að þú hafir átt góðan dag með stelpunum þínum :p 

Knús úr Breiðholtinu :d

Ferrari Girl



» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 23:32:13 / loasae

Söknuður

Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.

Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.

       Vilhjálmur Vilhjálmsson

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 23:56:40 / loasae

Gleði og Sorg


Jahérna hér það er langt liðið á annan mánuð síðan ég skrifaði hérna síðast, það gengur nú ekki upp hehe og margt búið að gerast.  Mig langar að byrja á smá upptalningu hehe - En sama dag og ég skrifaði hér síðast eða þann 26. ágúst fæddist Skvísa Scheving dóttir Raggýjar og Ingu og hefur hún hlotið nafnið Hjördís Huld - algjör gimsteinn.  Litla skvísan mín  hún Thelma Lind er orðin 7 mánaða skvísa og sú á eftir að verða kröftug og fjörug þegar hún fer að fara um á tveimur jafnfljótum hehe held að Steinunn og Ásgeir þurfi ekki á leikfimi að halda eftir að hafa elt dótturina í framtíðinni :p  Sigurjón minn átti afmæli 22. sept og svo á stóra systir mín hún Hrefna afmæli í dag.  Innilega til hamingju öll sömul, þið vonandi fyrirgefið að fá ekki kveðju hvert um sig hehe 

En það er því miður annað sem á hug minn þessa dagana, því eins og sum ykkar hafa vitað þá hefur verið veikindi í fjölskyldunni minni sl. árið, í pabba fjölskyldu, og sl. vikur hafa verið mjög erfiðar.  En sl. þriðjudagskvöld lést mágur pabba, eftir stutt en erfið veikindi.  Systur pabba hafa nær allar búið úti á landi en yngsta systirin bjó í bænum og þarafleiðandi var mikið samband þar á milli.  Ég passaði fyrir þau hérna í denn og voru alltaf sterk bönd okkar á milli.  Það er alltaf erfitt þegar maður á besta aldri er tekin frá fjölskyldu og öðrum ástvinum langt um aldur fram :cry:   Ég vil heiðra minningu hans og set því síðuna mína í smá sorgarbúning þessa vikuna svona rétt á meðan að kveðjustundir fara fram :(

Ferrari Girl í sorg :cry:


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 23:02:20 / loasae

Silfrið


Hæ öllsömul og til lukku með silfrið :haha:  Þetta var náttlega bara frábært hjá strákunum okkar hehe - það var klikkaðslega gaman að horfa á leikinn gegn spánverjum á föstudaginn.  Leikurinn var sýndur uppí matsal niðrí vinnu og þvílík stemming sem myndaðist, það var sko ekki mikið unnið þennan dag, hehe sko vinnulega séð :d  Og núna verður maður bara að mæta niðrí bæ á morgun og taka á móti strákunum :þ    -  Og aðrar gleðifréttir eru þær að nú bíður maður bara átekta eftir símtali/sms sem mun berast þegar Skvísa Scheving lætur sjá sig (dóttir Raggýjar og Ingu), en það mun verða á allra næstu dögum.  Ég hlakka ekkert smá til að sjá litlu skvísuna :haha: og efast nú ekki um að mömmum hennar finnist nú alveg nóg komið af biðinni eftir henni  hehe :þ   

Svo ég vaði nú úr einu í annað þá hef ég verði alveg hræðilega löt að skrifa hérna sl. árið (eins og þið hafið nú orðið vör við hehe) en ég hef einhvern vegin verið föst með þá flugu í hausnum að ef ég hef ekki frá neinu alveg sérstaklega spennandi að segja þá er best að þegja, því það nennir engin að lesa leiðinlegt og niðurdrepandi blogg hehe en hey.. verður það ekki að vera inná milli ? Þetta verður nú að vera mannlegt hehe ;)  Ég hef líka verið mjög mikið að hugsa og spekúlera sl. mánuði, um lífið og tilveruna. Hvað það er sem skiptir máli og hvað ekki.  Hverjir hafa góð áhrif á mann og hverjir ekki ?  Hvert stefni ég ? Hvað vil ÉG ?  Ég veit að ég hef gengið í gegnum ýmsa erfiðleika sem oft á tíðum virtust óyfirstíganlegir, en með hjálp góðra vina og fjölskyldu hef ég staðið upp aftur - sterkari andlega :s  Hef líka aðeins verið að grúska og kynna mér trúmál, og þá ekki bara kristna trú og finnst mér margt spennandi þar.
Margt hefur farið í gegnum huga minn sl. mánuði,  ákvarðanir hafa verið teknar varðandi mörg atriði, en kannski óþarfi að fara nánar úti það hér á opnum vef :þ,.   Eitt hef ég líka uppgötvað, það er að manneskjan sem á að vera númer 1 -2 og 3 hjá mér hefur ekki verið það, og það er ég sjálf !!   Og þá er ég ekki að meina á eigingjarnan hátt.  Smátt og smátt hef ég verið að breyta því,  því ef ég hugsa ekki um sjálfa mig hver gerir það þá ??  Ég ein þarf að vera með mér í 24 tíma sólarhringsins allt árið um kring, og ef heilsan bregst mér get ég einungis kennt sjálfri mér um.  Mér finnst svo gott slagorð sem ég sá einu sinni á bol sem var einhvern vegin á þessa leið "Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, þá hefur heilsan ekki tíma fyrir þig á morgun "  úff ... þetta er nú orðið miklu lengra og persónulegra en ég ætlaði að hafa þetta, en ég bara varð að koma þessu frá mér, það er svo gott að skrifa hlutina frá sér... 

Ferrari Girl í miklum pælingum :haha:



» 6 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 22:10:52 / loasae

Austurferð


Margt hefur gerst síðastliðna vikuna  - Síðasta vika byrjaði með heldur mikilli sorg hjá ykkar konu þegar við ákváðum að litlu loðnu "börnin" okkar skyldu fá að sofna svefninum langa :cry: :cry:  Þetta var alveg afskaplega erfið ákvörðun og hefur hún tekið langan tíma í hugsun og pælingum.  Ég hét því alltaf að þessi dýr færu ekki frá mér fyrr en þau veiktust eða eitthvað álíka :s  en því miður - stundum gengur þetta bara heinlega ekki upp.  Ég sakna þeirra alveg svakalega og mun sjálfsagt alltaf gera það :$ Það hefur verið erfitt að koma heim úr vinnu og engin kemur trítlandi á móti mér, engin kemur og nuddar sér upp við mig og engin kúrir hjá mér yfir sjónvarpinu á kvöldin (nema audda Sigurjón minn hehe).  Þessar elskur voru svo yndislegir persónuleikar en lífið heldur áfram, ég er bara búin að sjá það að ég er líklega ekki manneskja í svona dýrahald, ég tengist dýrunum alltof mikið og á því alltaf rosalega erfitt þegar þau þurfa að fara....

En yfir í miklu skemmtilegri sálma, við skötuhjúin skelltum okkur austur á firði á miðvikudaginn í síðustu viku og brunuðum svo aftur í bæinn síðasta sunnudag.  Við lögðum af stað eftir vinnu á þriðjudeginum og tjölduðum eina nótt einhvers staðar á milli Kirkjubæjarklausturs og Skaftafells og á miðvikudeginum var haldið áfram austur á Fáskrúðsfjörð til tengdapabba :haha:  Við kíktum til ömmu Sigurjóns og þann hluta fjölskyldu hans sem enn býr á Fáskrúðsfirði eða í námunda við fjörðinn hehe 8)  Þetta var bara voða rólegt og næs - kíktum í sveit og ég fékk að gefa heimalingi, litlu lambi sem hefur sest að hjá frænda Sigurjóns - Mér fannst það alveg æði enda hef ég ekki upplifað slíkt áður þar sem ég var aldrei í sveit sem krakki  :haha:

Á morgun er svo leikur strákanna okkar við Spánverja, Spánverjar munu örugglega leika með sorgarbönd þar sem búið er að lýsa yfir þjóðarsorg þar vegna flugslyssins sem var alveg hræðilegt :(  - Einn vinur minn býr á Las Palmas á Kanaríeyjum (þangað sem vélin átti að fljúga) og vinnur sem flugþjónn á Spanair, það var alveg ótrúlegur léttir að heyra frá honum í gærkvöld og vita það að hann var ekki í vélinni.  En auðvitað tekur þetta á alla sem vinna hjá Spanair og náttlega alla þjóðina  - Þó við ætlum auðvitað að vinna Spánverjana skulum við hugsa hlýlega til þeirra á morgun :) 

Áfram Ísland - Ferrari Girl


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 12:39:55 / loasae

Gay Pride 2008


Í dag er hátindur hinsegin daga í Reykjavík - sjálf Gay Pride gangan :haha:   Ég er á leiðinni út að fara að horfa á herlegheitin en langar fyrst að óska Raggý og Ingu - Sigga og Antoni til hamingju með daginn og hátíðina alla :lol:  

Það verður nóg að gera í dag - fyrst að horfa á gönguna og svo skemmtiatriðin, og svo í kvöld ætla ég að skella mér í Gay Pride partý aldarinnar hjá Raggý minni og Ingu - Hlakka rosalega til, það er svo mikil gleði á þessum degi enda erum við Íslendingar komnir ansi langt í réttindum fyrir samkynhneigða þó enn sé fullt eftir.    Jæja ég ætla að rjúka og sýna minn stuðning í miðbænum :haha:  Eigið litríkan dag !!  :lol:

Ferrari Girl í lit :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 00:00:22 / loasae

Mamma mía !!


Jæja er ekki komin tími á blogg eftir þessa rétt rúma tveggja mánaða pásu ? :haha:  Ég var að koma heim úr bío, fór að sjá "Mamma mía" í annað sinn - fæ ekki nóg af þessari mynd, væri alveg til í að sjá hana í þriðja sinn hehe en ég verð víst bara að láta mér nægja að kaupa DVD þegar það kemur :þ  eða undirstinga einhvern góðan ættingja um afmælisgjöf hehe en iss það er nú svo langt í það :lol: 

Þar sem það er orðið svo óralangt síðan ég bloggaði þá ætla ég nú bara rétt að stikla á stóru yfir það sem ég hef gert í sumar, ætla ekki að fara að mylja ofan í ykkur smáatriðin hehehe - þið fáið nú ekki að vita allt kæru lesendur (ef einhverjir eru eftir hehe).    Ég byrjaði sumarið í endan maí með því að kíkja til Raggýjar minnar og Ingu og fá þetta líka æðislega rabbarabara pæ og svo þrömmuðum við Hafnfirðingarnir ( Raggý og ég) niðrí miðbæ Hafnarfjarðar því þetta var jú setningarkvöld 100 ára afmælis bæjarins :haha:  og sannir Hafnfirðingar láta sig ekki vanta á það :þ  Þetta var á fimmtudagskvöldi og svo á laugardagskvöldinu skellti ég mér líka í bæinn og nú á úti-tónleika.  Talandi um tónleika þá skellti mín sér líka á Whitesnake tónleikana, eitthvað sem ég hefði haldið að ég ætti ALDREI eftir að gera - að fara á tónleika með Whitesnake, get nú ekki sagt að ég hafi hlustað mikið á þá sem krakki en ..... eftir að ég kynntist Sigurjóni mínum þá hefur sú hlustun aðeins aukist hehe og eiga þeir mörg góð lög :)  Í sumarfríinu mínu fór ég í bústað í Munaðarnesi í heila viku og það var alveg yndislegt - fór með mömmu, Steinunni og Ásgeiri og audda litlu Thelmu minni - alveg yndislegur tími og frábært veður, því miður komst minn heittelskaði ekki þar sem hann var að skipta um vinnu og komst ekki í frí akkurat á þessum tíma :(  en koma tímar koma ráð hehe.  Restinni af sumarfríinu eyddi ég svo bara hérna heima í allskonar dúllerí og bras, tók til í geymslunni hehe, fór á kaffihús, passaði Thelmuna mína í fyrsta sinn :þ og lék í auglýsingu - jú jú þið eruð að lesa rétt - haldiði að ykkar kona hafi ekki séð auglýst eftir fólki og fékk þessa snilldar flugu að skrá sig og vera með - alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt - og ef ykkur langar alveg rosa mikið að sjá þessa auglýsingu eða réttara sagt myndband, þá getið þið kíkt inná www.byr.is og kíkt á nýja myndbandið með Páli Óskari og ef þið eruð mjög glögg þá sjáið þið mig bregða fyrir hehehe.   Nú er stefnan tekin á Gay Pride næstu helgi, ætla að kíkja í bæinn og horfa á gönguna eins og ég hef gert undanfarin ár og svo um kvöldið er mér boðið í eitt glæsilegasta Gay Pride partý ársins :haha:  og hlakka ég rosa til -  Það verður gaman að halda uppá daginn með Raggý minni og Ingu 8) 

En jæja ætli sé ekki best að fara að slaufa þessu áður en þetta pár verður að heilli ritgerð og fara að koma mér í háttinn, vona að einhverjir kíki hér inn ennþá :haha:

Ferrari Girl í ABBA fíling ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 00:20:04 / loasae

100 ára afmæli og nýr titill :)


Ég er að rifna úr monti í þessum töluðu orðum :haha:  Því klukkan 2.05 síðastliðna nótt (31.maí)  fékk ég nýjan titil - ég varð ÖMMU systir :lol:  Jújú og þeir sem ekki ná því alveg þá varð Hrefna systir amma sl. nótt þegar Dagrún "litla" eignaðist litla prinsessu, það bætist og bætist bara við í prinsessuhópinn í fjölskyldunni á þessu ári :haha: -  Ég var að fá sendar myndir af nýfæddu skvísunni áðan og ekki laust við að ég sæi svip af ömmusysturinni hehehehehe 8)  Það hentar mjög vel að þegar hún Dagrún mín fæddist fékk ég í fyrsta sinn titilinn móðursystir þá aðeins 17 ára gömul að hún skuli svo gefa mér ömmu systur titilinn í fyrsta sinn.  Þór ! ! - þá á ég bara eftir að verða AFA systir í fyrsta sinn hehehehehehehehehe  Enn ég segi bara enn og aftur innilega til hamingju með prinsessuna Dagrún mín - hún er alveg yndisleg og ég fæ að fylgjast með á myndum, því þið eruð því miður alltof langt frá mér til daglegra heimsókna :cry:

En að allt öðrum hlut - Bærinn "minn" Hafnarfjörður verður 100 ára á morgun 1. júní og hafa hátíðarhöld staðið yfir síðan á fimmtudaginn ;)  Ég byrjaði á því á fimmtudagskvöldið að kíkja til Raggýjar minnar og Ingu í smá kaffi og svo röltum við Raggý niðrí miðbæ til að sýna okkur og sjá aðra - gaman að upplifa svona "Hafnarfjarðargöngu"  með öðrum Hafnfirðingi :haha:
Kíkti svo í dag á hátíðarhöldin og fór svo á tónleikana á Víðistaðatúni í kvöld.  Það er alltaf jafn gaman að koma í Fjörðinn á svona hátíðsdögum og sjá öll andlitin sem maður man eftir úr bænum :lol:

En jæja ætli sé ekki best ég hætti þessu blaðri og fari að koma mér í bælið og enn og aftur innilega til hamingju með afmælið á morgun allir Hafnfirðingar :haha: :haha:



» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 18:09:58 / loasae

Spennan magnast


Ég er nú varla hér - ég er enn uppí skýjum :lol:  Ég gjörsamlega missti mig í gærkvöldi, gargaði meira segja svo hátt að ég vakti Thelmu litlu sem var nýsofnuð í fanginu á pabba sínum :s  en hún var nú sem betur fer fljót að sofna aftur - úff púff eins gott fyrir mig, því annars væri ég nú líklega á bannlista heima hjá Steinunni og Ásgeiri hehehehehehe.  En ég reyndi nú að hvísla því að Thelmu að hún myndi skilja þetta þegar hún eldist og fer að halda uppá Friðrik Ómar, pabbi hennar var nú ekki eins sammála :lol: :lol:   Já það er svona þegar maður styður sitt fólk hehe ég hef nú svo sem ekki verið þekkt fyrir eitthvað hálfkák í þeim efnum :haha: :haha:  en allavega eru taugarnar alveg útþandar núna og spennan er að magnast - það verður klikkaðslega gaman að horfa á morgun (svo maður noti nú góð íslensk lýsingarorð hihi) - Á þessu heimili verður sett upp Eurovision þema - BLEIKUR -  hehe gestirnir sem koma annað kvöld hafa fengið þær upplýsingar að lykilorðið sé bleikur :haha:  Eurobandið verður stutt til hins ýtrasta og fagnað að leikslokum sama hvernig fer  - Maður styður liðið sitt alla leið :þ  Það er náttlega sigur útaf fyrir sig að ná upp úr forkeppninni, ég vildi bara óska að ég væri þarna með þeim en í staðinn verð ég bara að standa mig hér sem klappstýra :haha:  - Jæja ætli sé ekki best að fara að taka til eitthvað hérna svo maður hafi nóg pláss til að hoppa og skoppa, ekki má nú heldur gleyma Eurovision leiknum sem maður þarf náttlega að prufa hehehehehe - jæja elskurnar góða skemmtun á morgun - heyrumst síðar.....

Ferrari Girl - Spennan magnast



» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 19:26:05 / loasae

Afmæli og tuskudagur


Mig langar að byrja á því að óska henni Svönu minni til hamingju með daginn :haha:  Innilega til hamingju skvís og vona að þú hafir notið hans vel, við sjáumst svo hressar og kátar í kvöld - held það sé komin tími á að ég vinni í þessu árlega spili :lol:  Ótrúlegt hvað maður er alltaf jafn ungur ;), var að hugsa aðeins til baka í dag og rifja upp þegar við Svana kynntumst fyrst þá 18 og 19 ára gamlar, það er nú ekki svo langt síðan - ekki nema 17 ár (pjúffffffff).  Ótrúlegt hvað tíminn líður en aldrei eldist maður neitt :þ :haha:

Í dag var svo "tuskudagur" í vinnunni, þar sem ekki mikið var unnið í svona venjulegum störfum heldur þrifið hehe - jú jú það er mikið lagt á okkur ríkisstarfsmenn :lol: :lol:  Neinei þetta er rosa skemmtilegir dagar.  Á svona dögum höfum við ákveðin þema og dressum okkur upp og þrífum jú (var ekki að ljúga því), tökum til í skrifborðunum okkar, hendum blöðum og gögnum og slíku sem hefur safnast upp - og þrífum það sem ræstingar fólkið á ekki að þrífa og svo er náttlega haft gaman, grillaðar pylsur í hádeginu, allir hressir og kátir - borðað snakk - gos og jafnvel eitthvað sterkara (en þá náttlega auðvitað í enda dags :o ) Og svo keppist náttlega hver deild og hæð við að vera sem flottastur í búningum og slíku.  Í dag ákváðum við hæðin að vera sjóræningjar og varð sú útfærsla ótrúlega flott þó ég segi sjálf frá hehe - við vorum ekki öll alveg eins en öll vorum við sjóræningjar (mismunandi útfærslur) og skreyttum hæðina með sjóræningja blöðrum, fánum og öðru tihleyrandi.   Svo í enda dags eru veitt verðlaun - besti búningurinn, bjartasta vonin, hreinasta skrifstofan, mútu verðlaun hehe (því hver um sig reynir auðvitað að múta dómnefndinni sem er stjórn starfsmannafélagsins hehe), múturnar í dag hjá fólki lágu í súkkulaði húðuðum jarðarberjum, dansi - súkkulaði og svo fram eftir götunum (eða göngunum öllu heldur hehe).  Við náðum sem sagt að kría út ein verðlaun hehe - " besta samstaðan " og vorum við bara rosa sátt með það :lol:  -  Svo eignaðist ég minn fyrsta verðlaunagrip þegar ég fékk titilin "karaoke meistari ársins"  og ég er náttlega búin að koma honum fyrir á besta stað á borðinu mínu niðrí vinnu :haha:  - Já þetta hefur verið bara frábær dagur í alla staði og mikið hlegið og stuð á mannskapnum.  En jæja ætli ég verði ekki að fara hætta þessu blaðri hér og fara að hafa mig til í veisluna hjá Svönu - verð nú að vera vel undirbúin ef ég ætla mér að vinna spilamennskuna þar (Partý og Co).....    Þar til síðar.......

Ferrari Girl á tuskudegi :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 11:23:51 / loasae

12. maí - Afmælisbarn dagsins


Í dag er enn einn maí afmælisdagurinn :haha:  og nú er röðin komin að yndislegri litlu systur minni.  Já hún Steinunn mín á afmæli í dag - Ekki nóg með það að hún sé alveg frábær systir, heldur er hún núna orðin móðir lítillar 2 mánaða skvísu og er eins og hún sé fædd í það hlutverk.  Að öllum öðrum ólöstuðum þá er ég að rifna úr stolti yfir hvað hún er æðisleg mamma.  Thelma Lind hefur verið dáldið veik undanfarið - bæði með eyrnabólgu og bakflæði - og það er aðdáun að horfa á hvernig Steinunn tæklar hlutina - sé hana aldrei skipta skapi og þolinmæðin er ótrúleg þó það taki örugglega oft á að horfa á litla gullið sitt gráta út í eitt og jafnvel gráta sig í svefn.  Steinunn mín þú ert yndisleg og frábær og svo traust systir, og ég er svo stolt af því að vera systir þín.  Ef ég heyri ekki í þér eða frá þér daglega þá er ég ómöguleg, en það veistu nú þegar hehe :þ  
Innilega til hamingju með daginn Steinunn mín og sjáumst á eftir :d  Knúúúuuuusss og kossar úr Breiðholtinu :haha:

Ferrari Girl á tilfinningalegum nótum :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 40528